
Ofbeldi í nánum samböndum
Ofbeldi er þegar einhver gerir eitthvað sem meiðir þig eða lætur þér líða illa. Það kallast ofbeldi í nánu sambandi eða heimilisofbeldi þegar sá sem beitir ofbeldinu er skyldur eða tengdur þér, til dæmis maki, fyrrverandi maki, fjölskyldumeðlimur eða umönnunaraðili. Ofbeldi getur átt sér stað óháð kyni, aldri, kynhneigð eða hverju öðru.






