Vanræksla

Vanræksla er tegund af ofbeldi sem birtist hjá einstaklingum sem þurfa aðstoð; eins og eldra fólk, börn eða fólk með fötlun. Það er vanræksla þegar manneskja fær ekki þá aðstoð sem hún þarf til að líða vel.

Vanræksla getur verið af hálfu aðstandanda eða umönnunaraðila og getur átt sér stað innan heimilis og hjúkrunarheimila.

  • Eldra fólk þarf oft aukna aðstoð á efri árum, til dæmis með lyfjagjöf eða heimsókn á heilsugæslu. Það er vanræksla ef umönnunaraðili sinnir ekki þeim þörfum.
  • Fatlað fólk þarf oft sérhæfða aðstoð við dagleg verkefni. Það er vanræksla þegar fatlað fólk meiðist eða þarf aðstoð vegna veikinda og fær ekki aðstoð. Sama á við þegar fatlað fólk þarf að komast á milli staða og fær ekki umsamda þjónustu.
  • Börn eru á forræði foreldra og það er vanræksla ef barn er illa klætt, fær ekki lyf eða nóg að borða.

Einstaklingar sem eru vanræktir upplifa oft hjálparleysi, ótta, reiði, kvíða og þunglyndi. Þeir óttast að vera ekki við stjórn á eigin lífi og sú tilfinning gerir það að verkum að ólíklegra er að fólk segi frá vanrækslu. Það er mjög mikilvægt að segja alltaf frá vanrækslu því öll eigum við rétt á að líða vel.

Það gæti verið vanræksla ef einhver:

  • Gerir lítið úr því að þú þurfir að drekka eða borða.
  • Hjálpar þér ekki við að komast á klósettið.
  • Svarar þér ekki þegar þú talar.
  • Gefur þér ekki lyfin þín á tilsettum tíma.
  • Er sama þótt þú sért í skítugum eða blautum fötum.
  • Fer ekki með þig til læknis ef þú þarft þess.
  • Sækir þig ekki eins og um var samið.

Það er alltaf betra að segja einhverjum frá hvernig þér líður. Ef þú vilt fá aðstoð getur þú haft samband við Bjarkarhlíð í Reykjavík eða Bjarmahlíð á Akureyri sem sérhæfa sig í stuðningi við fullorðna við hvers konar ofbeldi. Engu máli skiptir hversu langt er síðan ofbeldið átti sér stað.

Börn og fullorðnir geta alltaf talað við einhvern hjá 1717 (hjálparsíma Rauða krossins) eða haft samband við 112 gegnum síma eða netspjall.

Þekkir þú birtingarmyndir ofbeldis?

Skoða fleiri dæmi

Fjóla

Eftir að barnsfaðir Fjólu fór skyndilega frá henni og þriggja ára stelpunni þeirra, Ásdísi, leitaði hún meira og meira í áfengi. Því meira sem Fjóla drekkur því oftar gerist það að hún reiðist við Ásdísi sem er mjög lík pabba sínum. Fjóla hefur oft hreytt í Ásdísi að það sé henni kenna að pabbi hennar fór frá þeim eða segir henni að fara inn í herbergi því hún getur ekki horft upp á hana.

Nágrannakona Fjólu passar oft Ásdísi en þegar Fjóla sækir ekki dóttur sína eitt skiptið fyrr en morguninn eftir veit nágrannakonan ekki alveg hvað hún eigi að gera.

Er þetta ofbeldi?

Úrræði í boði

Skoða fleiri úrræði
Merki fyrir fatlaða á vegg fyrir ofan skábraut.

Réttinda-gæslu-maður

Réttinda-gæslu-maður hjálpar fötluðu fólki að ná fram rétti sínum.

Barnavernd

Markmið barnaverndarnefnda er að styðja foreldra til að hugsa um börnin sín. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að láta barnavernd vita.

Mannréttinda­skrifstofa

Hjá Mannréttindaskrifstofu fá innflytjendur ókeypis lögfræðiráðgjöf.

Velferð barna

Öll börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi. Ef þú veist eða hefur grun um að barn sé beitt ofbeldi áttu að tilkynna það. Alvarlegt einelti, vanrækslu og áhættuhegðun á líka að tilkynna. Góð samskipti og fræðsla er góð undirstaða til að fyrirbyggja ofbeldi og stoppa það eins fljótt og hægt er.

Strákur les í bók, við hlið hans situr unglingstelpa með snjallsíma og heyrnatól