Réttindi erlendra kvenna

Hjá WOMEN geta erlendar konur fengið ráðgjöf um réttindi sín og úrræði á Íslandi. WOMEN hjálpa sérstaklega konum sem verða fyrir ofbeldi. Ráðgjöfin kostar ekki neitt. Annað hvert þriðjudagskvöld frá 8 til 10 er jafningafræðsla þar sem þú getur mætt og talað við aðrar erlendar konur.

Ráðgjafar WOMEN tala íslensku, ensku og fleiri tungumál. Í húsi WOMEN er lyfta þannig að hægt er að komast í hjólastól. WOMEN borga ekki fyrir táknmálstúlkun.

WOMEN er á Túngötu 14 í Reykjavík. Þú getur bókað viðtal með því að senda þeim tölvupóst á info@womeniniceland.is eða hafa samband gegnum vefsíðuna þeirra eða facebook.

WOMEN hjálpa erlendum konum á Íslandi sem verða fyrir ofbeldi.

Reynslusaga Önnu

Óvenju hátt hlutfall kvenna sem leitar til Kvennaathvarfsins er af erlendum uppruna. Anna frá Rússlandi segir frá sambandi sínu við íslenskan maka sem beitti hana ofbeldi. Eftir nokkur ár leitaði hún sér hjálpar, fór frá honum og hóf nýtt líf með börnum sínum.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð

Fjölmenningarsetur

Hjá Fjölmenningarsetrinu geta innflytjendur á Íslandi fengið upplýsingar um réttindi sín og aðstoð við að flytja til eða frá landinu.

Mannréttinda­skrifstofa

Hjá Mannréttindaskrifstofu fá innflytjendur ókeypis lögfræðiráðgjöf.

Kvennaathvarfið

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Heiðursofbeldi

Heiðursofbeldi er þegar einhver beitir þig ofbeldi til að verja heiður fjölskyldunnar, oft náinn ættingi. Þegar heiður er settur ofar mannréttindum þínum, þá er það ofbeldi.

Manneska situr á hnjánum á gólfinu. Hún er leið á svip, með lokuð augun og höfuðið lítur niður til jarðar.