Stuðningur og ráðgjöf vegna kynferðisofbeldis

Á Norðurlandi er neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar er opið allan sólarhringinn, allt árið. Það kostar ekkert að fara þangað. Þú færð aðstoð, alveg sama hvaðan þú kemur og hvar þú býrð. Það getur verið gott að koma með einhverjum sem þú treystir.

Á neyðarmóttökunni vinna hjúkrunarfræðingar, félagsfræðingar, sálfræðingar og læknar sem geta hjálpað þér andlega og líkamlega.

Í skoðuninni er safnað sakargögnum sem hægt er að nýta ef þú ákveður að kæra. Til að auka líkurnar á að finna sakargögn er mikilvægt að koma eins fljótt og hægt er og ekki þvo þér eða fötin þín áður. Það er aldrei nein krafa um kæru.

Þú getur annað hvort komið beint eða hringt í síma 463 0800.

Neyðarmóttakan á Akureyri tekur vel á móti þér allan sólarhringinn.

Skoðun á neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis

Áður en þú mætir á neyðarmóttökuna getur verið gott að vita við hverju þú mátt búast.

Tvær manneskju í blómakrónu. Önnur er leið. Hin er ánægð. Þær teygja sig í áttina að hvor annarri. Á myndinni lítur út eins og þær muni haldast í hendur mjög fljótlega.

Meiri aðstoð

Sjá alla aðstoð

Neyðarmóttaka vegna kynferðisofbeldis

Neyðarmóttakan tekur á móti öllum þeim sem hafa orðið fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar eða öðru kynferðisofbeldi.

Bjarmahlíð á Akureyri

Bjarmahlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Kvennaathvarfið á Akureyri

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Kynferðislegt ofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi er það þegar einhver káfar á þér eða fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera. Kynferðisleg áreitni með orðum og látbragði er líka ofbeldi.

Manneskja heldur fyrir augun. Hún snýr að okkur og mikið liðað hár sveiflast til hægri í vindinum.