Það þarf alltaf samþykki til að deila kynferðislegu efni af öðrum

Það er ekkert að því að taka og senda kynferðislega mynd af sér eða öðrum ef allir aðilar eru til í það. En því fylgir viss áhætta svo þá er mikilvægt að treysta öllum aðilum. Það er ólöglegt ef kynferðislegt efni af þér er tekið, dreift eða birt án leyfis. Það sama á við ef einhver hótar að gera þessa hluti eða þrýstir á þig. Það er líka brot ef einhver sendir þér kynferðislega mynd af sér án þíns leyfis.

Þetta kallast vanalega stafrænt kynferðisofbeldi því oftast er stafræn tækni notuð, eins og netið og símar. En það sama á við um framkallaðar ljósmyndir og annað efni sem er ekki stafrænt. Stundum er þetta líka kallað hrelliklám og hefndarklám, en lagalega hugtakið er brot gegn kynferðislegri friðhelgi.

Fólk sem verður fyrir stafrænu kynferðisofbeldi getur upplifað mikla vanlíðan, niðurlægingu, skömm og áhyggjur. Að verða fyrir stafrænu kynferðisofbeldi getur haft jafn miklar afleiðingar og kynferðisofbeldi í raunheimum.

Það getur til dæmis verið stafrænt ofbeldi ef maki þinn eða einhver annar:

  • sendir þér óumbeðnar kynferðislegar myndir, myndbönd eða skilaboð
  • tekur kynferðislegar myndir eða myndbönd af þér í leyfisleysi
  • dreifir kynferðislegu efni af þér á vefsíðum eða til annarra, til dæmis mynd, myndbandi, hljóðupptöku eða skilaboðum
  • dreifir fölsuðu kynferðislegu efni af þér
  • þrýstir á þig til að senda sér nektarmyndir eða myndbönd af þér
  • hótar að dreifa kynferðislegu efni af þér

Það er líka ólöglegt að senda áfram kynferðislegt efni af öðrum ef þú veist ekki hvort viðkomandi manneskja hefur gefið leyfi. Þótt þú getir sent myndina áttu ekki að gera það.

Mega unglingar senda nektarmyndir af sér?

Það er löglegt að unglingar 15 til 18 ára sendi kynferðislegt efni af sér til annarra á svipuðum aldri og þroska – ef allir aðilar eru því samþykkir og treysta hvor öðrum. Það er samt alltaf áhætta sem fylgir því að deila kynferðislegri mynd með öðrum.

Það er alltaf ólöglegt að senda kynferðislega mynd til einhvers sem bað ekki um hana, til dæmis typpamynd.

Börn geta ekki gefið leyfi og það er alltaf ólöglegt þegar fullorðnir (eldri en 18 ára) taka kynferðislegt efni af börnum (undir 18 ára) eða senda þeim kynferðislegt efni.

Hér eru ráð fyrir börn og unglinga sem lenda í áreiti á netinu.

Fáðu hjálp

Það er alltaf betra að segja frá ef þú hefur lent í ofbeldi, alveg sama hversu langt síðan það átti sér stað. Þú getur haft samband við Stígamót sem eru samtök sem hjálpa fólki eldri en 18 ára sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Börn og ungmenni undir 20 ára geta fengið ráðgjöf á netspjallinu Sjúkt spjall.

Svar við ólöglegum kynferðislegum myndum

Vantar þig svar þegar einhver sendir þér nektarmynd sem þú baðst ekki um? Eða þegar einhver biður þig að senda nektarmynd af þér? Hér eru hugmyndir að svörum sem segja hvað sé ólöglegt.

Samþykki

Samþykki þýðir að veita leyfi fyrir kynlífi eða kynferðislegum hlutum af frjálsum vilja. Samþykki þýðir ekki endilega „já“ eða „nei“. Það getur líka verið veitt með öðrum orðum eða líkamlegri tjáningu.

Stígamót

Stígamót hjálpa öllum (konum, körlum og kynsegin fólki) sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.

Sjúkt spjall

Nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndum, samskiptum eða ofbeldi.

Taktu skrefið

Taktu skrefið er hópur sálfræðinga sem aðstoðar fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi.

Kynferðisofbeldi

Kynferðisofbeldi er það þegar einhver fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera, káfar á þér eða áreitir þig á kynferðislegan hátt.

Manneskja heldur fyrir augun. Hún snýr að okkur og mikið liðað hár sveiflast til hægri í vindinum.

Stafrænt ofbeldi

Stafrænt ofbeldi, eða netofbeldi, er það þegar einhver notar tæki eða tækni til að fylgjast með þér, ógna þér, áreita þig eða niðurlægja þig.

Manneskja horfir á símann sinn sem sýnir ólæsileg skilaboð. Hún snýr baki í okkur svo við sjáum á símann í höndunum á henni. Mikið liðað hár sveiflast í vindinum.