Neyðarstig - eldgos hafið á Reykjanesi

Hvað er kynlífsmansal?

Kynlífsmansal er þegar manneskja er neydd til að taka þátt í kynferðislegum athöfnum gegn vilja sínum. Oft er kynlífið boðið gegn greiðslu en stundum er það veitt í skiptum fyrir aðra hluti og þolandi fær enga greiðslu fyrir.

Margir tengja orðið vændi við kynlífsmansal. Að selja vændi er löglegt á Íslandi en það er ólöglegt að einhver annar hagnist á að selja aðgang að líkama manneskju. Hótelherbergi, skemmtistaðir og heimahús eru dæmi um þá staði sem eru nýttir fyrir kynlífsmansal. Yfirleitt hafa gerendur mikið vald andlega yfir þolendunum og nýta sér ótta þeirra til að fá sínu framgengt.

Kynlífsmansal getur verið þegar:

  • Það er selt aðgangur að líkama þínum fyrir kynferðislega hluti án þess að þú viljir það.
  • Þér er hótað og þvingað til að þú haldir áfram að selja líkama þinn gegn vilja þínum.
  • Þú færð ekki læknishjálp vegna kynsjúkdóms eða annarra áverka vegna kynferðislegra athafna með ókunnugum.
  • Þú færð ekki að verja þig gegn kynsjúkdómum ef þú ákveður að selja vændi.

Það er alltaf leið út úr aðstæðum kynlífsmansals. Neyðarverðir 112 eru tilbúnir að aðstoða þig.

Þekkir þú birtingarmyndir ofbeldis?

Skoða fleiri dæmi

Miriam

Miriam var svipt frelsi sínu og neydd til að stunda vændi í heimalandi sínu. Það næsta sem hún veit er að hár hennar er klippt og litað og hún er send í flugvél til Íslands með fölsuð skilríki. Á Íslandi er hún látin stunda vændi áfram, án þess að fá nokkru um það ráðið.

Miriam á enga peninga né vini sem hún getur leitað til. Hún þorir ekki að andmæla aðstæðum sínum því þá verður fjölskylda hennar heima í Lettlandi beitt ofbeldi. Hún veit ekki hvert hún verður send næst eða hvernig hún kemst út úr þessum vítahring.

Er þetta ofbeldi? Veldu svar:

Leiðarvísir um réttarvörslukerfið fyrir þolendur kynferðisbrota

Ef það hefur verið brotið á þér kynferðislega gætirðu viljað draga gerandann til ábyrgðar. Hér eru upplýsingar um ferlið, frá því að brotið er tilkynnt til lögreglu og þar til það fer fyrir dóm.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Neyðarmóttaka vegna kynferðisofbeldis

Neyðarmóttakan tekur á móti öllum þeim sem hafa orðið fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar eða öðru kynferðisofbeldi.

Stígamót

Stígamót hjálpa öllum (konum, körlum og kynsegin fólki) sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.

Nauðgun

Enginn hefur rétt á að þvinga aðra manneskju til að gera eitthvað kynferðislegt sem hún vill ekki gera. Þegar kynmök eru höfð við manneskju án samþykkis er það nauðgun.

Vinnumansal

Vinnumansal er þegar vinnuveitandi hagnast á vinnuframlagi annarar manneskju.