Aðferðir þeirra sem stunda mansal

  • Tæling. Gerandinn er góður í að finna fólk sem er á einhvern hátt í viðkvæmri stöðu. Markmiðið er að ná stjórn á manneskju svo hægt sé að þvinga hana til að framkvæma eitthvað og hagnast á því.
  • Val á manneskju. Gerandinn velur sér einstakling sem er í viðkvæmri stöðu. Til dæmis einhvern sem er að leita sér að betra lífi annars staðar vegna fátæktar. Það gæti líka verið innflytjandi sem þekkir ekki hvaða lög og reglur gilda um atvinnu eða aðrar aðstæður í nýju landi og samþykkir því kannski hluti sem hann myndi ekki samþykkja annars.
  • Öðlast traust. Gerandinn passar að þolandinn fái allt sem hann þarf eftir fyrstu kynni. Til dæmis útvegað húsnæði, síma eða annað sem þolandi gæti þurft og myndar þannig traust.
  • Einangrun. Fyrstu sjáanlegu merki mansals er oft þegar gerandi einangrar þolandann, heldur honum frá fjölskyldu sinni og aðstæðum sem gætu upplýst þolandann um að sé verið að blekkja hann.
  • Hagnýting. Þolandinn er notaður í vinnu sem gerandinn græðir á, til dæmis með því að greiða lægri laun og hirða mismuninn sjálfur eða greiða engin laun og segja að laun þolandans fari upp í skuld fyrir ferðakostnað eða lækniskostnað eða annan kostnað sem gerandinn hefur útvegað þolandanum.
  • Viðhalda stjórn. Gerandinn hefur mikil völd, til dæmis með því að taka vegabréf og önnur skilríki og pappíra af þolandanum, hóta að beita hann eða fjölskyldu hans ofbeldi ef hann gerir ekki það sem honum er sagt. Oft er þolanda kynlífsmansals sagt að sala á vændi sé ólögleg á Íslandi og hótað að ef hann gerir ekki eins og honum er sagt, þá muni gerandinn tilkynna hann til lögreglunnar og honum verður refsað - en það er ekki satt.

Hver eru einkenni mansals?

Hvað er hægt að gera til að stöðva mansal?

Þolandi mansals getur upplifað sig hjálparvana og og á erfitt með að treysta öðrum. Það er mikilvægt að muna að það er alltaf hægt að fá hjálp.

Hvort sem þú ert þolandi mansals eða grunar að önnur manneskja sé það, þá er fyrsta skrefið alltaf að hafa samband við 112.

Neyðarverðir 112 eru hlutlausir aðilar með tengingar við úrræði sem geta hjálpað þolendum mansals. Þegar þú hefur samband getur þú valið hvort lögreglan verði látin vita eða ekki. Þolandanum er boðið að tala við starfsfólk Bjarkarhlíðar sem veitir samhæfða þjónustu fyrir hugsanlega þolendur mansals. Þar er hægt að fá:

  • Tengingu við félagsþjónustu og Vinnumálastofnun.
  • Aðstoð við umsókn um tímabundið dvalarleyfi.
  • Lögfræðiaðstoð.
  • Aðstoð við húsnæðisleit.
  • Hjálp við að leita læknisaðstoðar.
  • Upplýsingar um kæruferli og réttarvörslukerfi hjá lögreglunni.

Lögreglan vinnur með fólki að því að koma því út úr aðstæðum mansals. Markmið lögreglu er alltaf að rannsaka mál einstaklings með öryggi hans í fyrirrúmi.

Hafðu samband við 112 ef þig grunar að þú eða einhver sem þú þekkir sé þolandi mansals.

Þekkir þú birtingarmyndir ofbeldis?

Skoða fleiri dæmi

Miriam

Miriam var svipt frelsi sínu og neydd til að stunda vændi í heimalandi sínu. Það næsta sem hún veit er að hár hennar er klippt og litað og hún er send í flugvél til Íslands með fölsuð skilríki. Á Íslandi er hún látin stunda vændi áfram, án þess að fá nokkru um það ráðið.

Miriam á enga peninga né vini sem hún getur leitað til. Hún þorir ekki að andmæla aðstæðum sínum því þá verður fjölskylda hennar heima í Lettlandi beitt ofbeldi. Hún veit ekki hvert hún verður send næst eða hvernig hún kemst út úr þessum vítahring.

Er þetta ofbeldi? Veldu svar:

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð

1717

1717 er hjálparsími og netspjall Rauða Krossins ef þú vilt tala við einhvern. Það er opið allan sólarhringinn. Ekkert vandamál er of lítið eða of stórt.

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Nauðungarþjónusta

Þegar einhver neyðir aðra manneskju til að vinna störf sem eru ekki hluti af þeirra starfi, þá heitir það nauðungarþjónusta og er ein birtingarmynd mansals.